Ađalvalmynd

La vie est belle

13. apríl 2009 klukkan 11:23
Fannst nú heldur betur kominn tími á eitt blogg :)
það er nú heldur betur margt búið gerast frá því síðasta bloggi en ætla nú samt að hafa þetta blogg stutt.

  • Jenný kom til Belgó, ógó gaman og við ferðuðumst aðeins um Belgíu, og enduðum svo í Amsterdam =) Það sem ég var ekki í fríi í skólanuæ taladi pabbi minn bara við vin sinn sem er læknir og hann skrifadi vottorð fyrirmig þannig ég var í fríi í viku til að vera með Jenný.
  • Austrríki =) fór til Sölden að heimsækja Andra, vibbó gaman og langaði ekki að fara aftur til Belgíu, svo gaman að hanga með fullt af Íslendingum, svo kom Jenný yfir eina helgi og var med okkur =) Við erum að fara að vinna þarna þegar við útskrifumst út MA. 
  • Fór með skólanum mínum til Breendonck, eru svona gyðingarbúðir úr seinniheimstyrjöldinni, ógeðslegt að sjá þetta! var samt ekki með gasklefum þar sem þeir voru drepnir en það dóu fullt af fólki þarna á ómannúðlegan hátt.
  • Sumarið er komið í Belgó =)
  •  Páskafríið er búið að vera indislegt =)og ég á ennþá viku eftir og er nú þegar búin að vera í rúmma viku, búin að sofa þokkalega mikið hef átt erfitt með að sofna á næturnar er orðin svo stressuð og spennt að koma heim þótt það sé 4. júlí haha. En ég er nú samt búin að gera eitthvað af mér í páskafríinu fór til Þýskalands í einn dag í geggjað fallegt þorp og líka eitthvað um Belgíu, fór einn dag til suður Belgíu að labba, þetta var einhver ferð sem systir pabba míns skipurleggur og hann fór svo við systur fórum með í einn dag var geggjað fínt og geggjað veður :) Svo voru það páskarnir í gær, 2 matarboð heima hjá mér úff! sko, át líka þokkalega of mikið af súkkulaði en er samt bara búin með 1/3 af því sem ég fékk og svo er ég líka að bíða eftir páskaeggjinu sem mamma senti mér. planið í dag er bara að mygla hérna heima ætla samt út að skokka i góðaveðrinu. á morgun er það svo elsku Antwerpen, ætla að fara að versla smá, smiðvikudaginn á ég date með Gauthier annaðkvöld til að ákveða hvað við ætlum að gera um helgina, á fimmtudaginn er ég svo að fara að hitta systur Gauthier sem ætlar að koma til íslands í haust :) er svo spennt að fá hana, ætla að reyna að fá hana á Akureyri.
  • Andri er svo að koma til Belgó ætlum til Amsterdam og svonna kanski til Köln er ekki ákveðið.



Svo ég óska ykkur öllum bara gleðilegra páska og hlakka til að hitta ykkur í sumar því það er svo ótrúlega stutt þangað til =)

Sviss blogg

10. janúar 2009 klukkan 12:45
Gledilegt árid kaeru lesendur. en já nú stittist í ad dvol min verdi hálfnud jább 4.júlí kem eg heim:)
En semsagt thá var ég í Sviss hja henni Jennsu minni í jóla fríinu mínu sem var algjort aedi!
Jólin voru samt drullu erfid og sokkudu eiginlega bara thau voru samt alveg skemtileg en bara ekki jól fyrir mér!
ef fékk flestu jólgjafirnar í fjolskyldunni minni, thau gefa ekkert mikid ad jólagjofum hérna í Belgíu, og thad var mjog skrítid hvernig vid opnudum pakkana, vid bordudum forréttina okkar og svo bara jaejja eigum vid ekki ad opna pakkana og svo bara opnudu allir pakkana sína í einu ekkert rosalega gaman en samt betra fyrir mig thvi eg var med svo mikid af pokkum annars hefdi thetta verid hálf vandraedalagt ^^
26. fór eg til Sviss til hennar Jennýar minnar vá hvad thad var ólýsanlega gott ad sjá hana vissi bara ekkert hvernig ég átti ad haga mér á lestastodinni XD og greyid gamla konan sem sat á móti okkur í lestinni.
en vid duttum bara vel í thad fyrstu 2 dagana og Jenný einmitt drepst seinna kvoldid. Vid hofdum thad bara rosa nice og bordudum godan mat og kurudum og svo fórum vid í fronskuhlutan til Genéve (Genf) thar sem ég gat spreytt mig á fronskunni minni :) haha
Fórum líka í hofudborgina Bern, er buin ad láta fullt af myndum á facebook-id mitt getid skodad thaer thar :)
Sviss er rosalega fallegt, hreint og dýrt land shit fékk mér eina máltíd a Mcdonalds fyrir meira en 1000 kr. íslenskar! Fékk svo ad sjálfsogdu ad smakka ýmsa osta og fékk geggjad ostafondú hjá henni Gissellu (mommu Jennýar) rosa gott! en hinsvegar eru sumir Sviss ostar bara vibbi sko! en mjolkin er rosalega gód tók mef mér 2 lítra haha krakkarnir í bekknum mínum fannst ég geggjad skrítin thegar ég sagdi theim frá tví. en mjólkin í Belgíu er bara svo slaem sko! Jújú svo fórum vid thil Thýskalands á gammlársdag í Europa Park thar sem staersti rússíbaninn í Evrópu er en hann var lokadur :( Jennýu til mikkilla ánaegju; en shit hvad hann er stór! En thad var rosalega gaman og fórum í nokkra klikkada rússíbana og Jenný stód sig eins og hetja :) fórum svo í Skandinavíu en funndum ekki ísland bara mynd af húsi mef íslanska fánanum lélegt sko!
En thegar vid komum aftur heim til Sviss var búid ad snjóa gaggjad svo vid gerdum thennan fína snjókall:)
en ég skammast mín nú fyrir ad segja frá thví en vid sváfum eignilega inn í nýja árid haha lélegt! madur er bara búin ad komast af thví ad besta djammid er á íslandi og líka bara thví meira sem ég ferdast thví meira átta ég mig á thví ad Ísland er besta landid! :)
ég skemmt mér allavega alveg rosalega vel í Svisslandi med henni Jennýu minni og get ekki bedid eftir ad fá hana til mín bara eftir nokkra daga, hún kemur 31. janúar og verdur í 9 daga erum líka ad fara á Emilíunu Torrini tónleika 1. feb saman :)
En núna er madur bara byrjadur aftur í skólanum og thad er alls ekki eins slaemt og ég héllt er farin ad skilja svo mikid er alltaf ad koma sjálfri mér á óvart, var líka ad tala vid Jean í gaer og hann var bara ad tala vig frekar hratt ad segja mer afhverju thad vaeri ekki saga og stelpurnar í bekknum mínar bara "Jean hún skylur thetta ekkert" hann bara "ehh! JÚ!" haha ég er oll ad koma og ég og Leigh-ann tolum eiginlega bara fronsku í skólanum :)
Fór á gongu skídi med pabba mínum í morgun thad var mjog finndid hann er helvíti gódur kallinn :) ég var hinnsvegar mjog léleg en skemmt mér samt vel, tókum samt bara mjog stuttan túr.
Thad hefur nefnilega ekki verid svona mikill snjór í Belgó í 10 eda 20 ár, thad er allt búid ad vera í fokki í thessari viku byrjadi ad snjóa á mánudagsnóttina svo thegar ég  var á leidinni í skólann med lestinni vae ég fost í lestinni í meira en klukkutíma út af vandamáli med snjó og somuleidis thegar ég aetladi heim thá var anthá eitthvad vesen svo ég beid eftir lestinni minni í meira en klukkutíma! Á thridjudaginn fór ég ekki einusinni í skólan út af snjónum haha algjor snilld var bara heima ad chilla fór med mommu og Fanny ad labba í snjónum svo var einhver svona dagur sem madur bordar einhverja koku og thad er eitthvad inn í henni og sá sem faer thad er kongur eda drottning og ég fékk thad audviad svo ég fékk svon fína kórónu :) thetta er svona svipad og mondlugrauturinn okkar. En allavegana og thad finndna er med thennan snjó ad tha er nú ekki einusinn mikill snjór svona mesta lagi 20cm thagar mest er, krúttó :) En thad er rosalega fallegt og fjolskyldan mín vill meina thad ad ég hadi komid med thetta med mér í farangrinum frá íslandi. Thad er búid ad vera vibbó kallt sko alveg -20 gràdur! SVo eru útsolurnar búnar ad vera á fullu svo ég er vara í HM thessa dagana, ég er algjor HM mella hérna versla eiginlega ekki annarstadar :/ thad er bara ekki var í neitt annad, nema jú thad eru rosafínar second-hand store í Antwerpen :)

allavegana thá fer bara ad styttast í mig á klakann og ég get ekki bedid!

 

jólablogg

11. desember 2008 klukkan 15:15
jæjja þá ætti maður nú a vera komin í jólaskapið....en ég get ekki sagt að ég sé í einhverju jólaskapi, ég er í engu jólaskaði :/ mjög skrýtið, og jólin hérna sökka! ekki jól fyrir mér, engar jólaskreytingar, nema jú í búðunum, og á ýmsum hringtorgum í borgunum hérna er einhverjar skreytingar en það er ekki neitt um það að fólk sé að skreyta sín eigin hún eins og tíðkast á íslandi, það er voða lítið um það, ekki einusinni jólaseríur í gluggan, allavegana ekki enþá, og það er 11. :/ Fór reyndar til Louvain la novue áðan og það var geggjað jólalegt niðrí bæ þar og svoa gerfi snjór að falla á mann á einu torginu voða krúttó, en já veit ekki hvað ég myndi gera ef ég væri ekki að fara til Jennýar um jólin =) 
Er að klára að reyna að pakka þessum jólagjöfum inn fór einmitt lit louvain la novue í dag til að klára að kaupa allt en neibb gleymdi veskinu mínu! frábært ég ætlaði að senda þær í dag en ég get það ekki svo ég verð að gera það á morgun svo það stefnir allt í að þið fáið gjafirnar mínar ekki fyrir jól :/ SORRY ég skal reyna hvað ég get.
Fer í síðustu prófin mín á morgun og er svo komin í jólafrí =) fer í þýsku og Ensku munnlegt er svoltið stressuð fyrir þýskunni :/ hef líka svo lítin metnað núna haha =) var samt að tala við Jennsu í gær og ég er að pæla í að skella mér í fjarnám eftir áró, við jennsa erum að pæla í að taka náttúrufræði og heimsspeki til að létta okkur næsta vetur =) held að ég eigi eftir að sjá eftir því að gera það ekki þegar ég byrja í MA næsta vetur :)svo ég ætla að skella mér get bara lært í þessu þegar ég er í skólanum =) 
Fór í jólapakka leiðangur til Brussel á föstudaginn og fór á jólamarkaðinn, ekkert rosalegt sko, grand place-ið er reyndar rosa jóló =) annars var brjálað veður Cintamani úlpan mín blotnaði nánast í gegn haha!
Sant Nicola kom svi föstudagsnóttina svo foreldrar okkar gáfu okkur geðveikt mikið af nammi og súkkulaði=) það var líka risa matarboð hérna á föstudagskvöldið rosa gaman ég og systurmínar vorum bara inn í stofu að borða og drekka, elska systur mínar, vorum svo bara eitthvað að kúra í sófanum.
Talaði pínu við 3.F (bekkinn minn) um daginn það var ótrúlega finndið og gaman að sjá þau =) Talaði líka við afa Guðmund =) á skype haha.
Annars eru jólafrís plönin mín þessi: á morgun er kanski bekkjarpartý hef bara ekki hitt Jean neitt í viku út af prófunum og svo ætlum við Samuel og Leigh-Ann að hafa move-night hjá Samuel, ætla til Luxembour með Leigh-Ann og einhverjum rotary vinkonum hennar, fer til Brugges með fjölsk.(feneyjar norðursins)  djamma, fara í eitthvað amerískt jóla-partý með Leigh-Ann í Namur, halda upp á jólin 24. og 25. fara til Jennýar 26. des =) kem heim 4.jan skóla 5. jan =)
Er líka alveg að missa mig í Despó og Greys get ekki hætt og ég sem á að vera að læra fyrir þýsku haha held ég fái nú ekkert hátt á þessu prófi :/ já ég ætla líka að reyna að komast í klippingu og litun fyrir jól hef ekki farið síðan ég fór fyrir Fiskidaginn til Kolbrúnar :/ veit bara ekki hvað ég á að taka til bragðs kann ekki að vera með svona sítt hár.


 

3 mánuđir

26. nóvember 2008 klukkan 17:13
Ég haf ákveðið að vera duglegri að blogga og af því tilefni ætla ég að blogga.

óvá ég er búin að vera hérna í 3 mánuði ég er búina að þrauka 3 erfiðustu mánuðini og nú verður þetta bara betra og betra!
Hef nú kanski ekki frá miklu að segja en engu að síður

Fór í verslunarferð til Antwerpen á lagardaginn með Ástu og verslaði fyrir 190 evrur og keypti nokkrar jólagjafir. Ég dýrka flæmskuhlutan hérna, kanski líka því ég er stundum svo pirruð á frönsku, allir í flæmskuhlutanum tala ensku og mér finnst líka miklu betra að hlusta á Flæmsku. En allavegana þarna vorum við á rolltinu um Antwerpen og vá hittum við ekki einn AFS gaur sem er skiptinemi í flæmskuhlutanum og við höfðum djammað með honum áður svo við þekkjum hann geðveikt skrýtið því það búa 300.000 (eitt ísland). Þetta er heldur ekki í fyrsta skiptið sem eitthvað svona gerist fyrir mig hérna gerist mjög oft. Ó um kvöldið á leiðinni heim vorum við að stoppa á Bruxelles-nord ein af stoppistöðum bruxelles, og ég sá naktar konur dansa í gluggum á strippbúllum það er svona gata fyrir neðan lestasporin og hún er full af þessu mjög fynndið að sjá þetta

Á sunnudaginn duttum við Gauthier eiginlega bara í það og fórum í  keilu og út að borða og ég svaf í 2 tíma og mætti eitur hress í skólann!! ekki mjög góður dagur.
Á þriðjudaginn fór ég með bekknum mínu og einum örðum bekk á safn fallegrar lista sem var mjög fallegt og áhugavert og sá eitt verk sem ég man eftir að hafa verið að læra um í sögu, Marat.
Annars er lífið bara að ganga sinn vanagang eða svona nokkurnveginn, og Ásta og Veera ætla að koma til mín um helgina og við ætlum að hafa Íslenskt bíó kvöld haha greyið veera, en hún vildi þetta sjálf=) og svo erum við að halda upp á afmælið yngstu systur minnar á sunnudaginn svo þetta eru mín rosalegu plön fyrir heelgina. þetta verður róleg helgi. svo eru bara prófin að byrja í næstu viku held ég, og ég var í einhverju fimleikaprófi í dag í íþróttum og mér gegg svo vel, kom sjálfri mér þvílíkt á óvart og kennarinn var mjög ánægð með mig =)ekki sem verst henni hefur ekki líkað svo vel við mig en ég held hún sé að skipta um skoðun eftir þetta haha.
Er komin með nýtt æði, how i met your mother love it! er búin veð heila seríu á 2 dögum!

Er samt stundum alveg brjáluð, um  dagin vorum við Leigh-ann (skiptineminn í skólanum mínum) að tala saman og auðvitað á ensku og ein bekkjarsystir mín sat hliðiná okkur en tengdist enganvegin samtalani en hún litl sagði okkur að tala á frönsku vá hvað ég var hneiksluð! en annars er þetta allt gott bara með frönskuna fyrir utan jú að leigh ann vill að við tölum saman á frösnku en vá mér finnst það bara kjánalegt ég tala frönsku við alla vini mína í skólanum og fjölskylduna mína ég er ekki tilbúin að fara að tala frönsku við hana, hún sökkar í frönsku eðða við erum bara á svipuðu leveli ég kanski aðeins á undan því ég veit meira í málfræðinni en vá mér finnst bara fáránlegt að hún sé eitthvað að segja mér að tala frönsku við sig takk fyrir!

Takk

Ţá er ţađ ákveđiđ

18. nóvember 2008 klukkan 17:30
Ég fer til Sviss 27.des og verð hjá henni Jenný minni í 10 daga, er farin að telja niður! Veit ekki hvernig við eigum eftir að láta á lestastöðinni, ég tek semsagt lest frá Ottignes (borg sem ég fer í á hverjum degi til að skipta um lest) til Zurich klukkan 8:50 að morgni og verð komin til Zurich rúmlega 4 þannig að við erum að tala um meira en 7 tíma lestaferð!!
Þetta reyndist bara ódýrasti og einfaldasti kosturinn.=)

Ætla að punkta herna eitthvað fyrir ykkur:

  • Bang Gang: Fór með Ástu minni, æðislegir tónleikar, litlir og kósý stemmari. Eftir á hittum við 2 Íslendinga =) hittum fullt af aðdáendum Íslands haha mjög gaman, Svo kom Barði og bauð okkuar með sér og bandinu að koma með og fá okkur að borða og við að sjálfsögðu þáðum það boð=) haha fékk mér hvítvín með Barða, algjör meistari. ótrúlega skemmtilegt kvöld.
  • Fór út að borða með bekknum mínum um daginn, ég og Jean og einhver vinur hans hittumst og fengum okkur bjór fyrir hittinginn, fínasta kvöld.
  • Við fjölskyldan fórum út að borða og á snooker bar, vorum að fagna afmæli fannyar og 20 ár eru síðan þau hittu Celine og Emilie fyrst eða þú veist ættleiddu þau.
  • SIGUR RÓS: VÁÁÁ!!!! það eru engin orð, bara geggjaðir tónleikar og mig langar bara mest til að koma heim til að fara á þá í laugardagshöllini, en ég læt það eiga sig ;) en rosa góðir tónleikar að sjálfsögðu og gaman að vera nánast sú eina í salnum sem skyldi og gat sungið með mohaha! Ásta endaði með að koma með okkur Veeru og hún nældi sér í miða fyrir utan rétt fyrir tónleikana.
  • Fór ekki í skólann í gær vegna þess að við vorum of seinar í lestina svo við gistum hjá Ástu og ég átti svooo næs dag í gær, algjört chill fór bara í íbúð systra minna í lvln og sturtaði mig og svona og svo var Celine í tveggja tíma eyðu í skólanum og við fengum okkur að borða og horfðum á einhverja mynd og svo fór hún bara aftur í skólan og þá var ég bara alveg út af fyrir mig það sem eftir var af deginum og lá bara í sófanum að horfa á bíomyndir (reyndar döbbaðar á frönsku, en ég ég skyldi sammt alveg) Bara svo gott að fá að vera ein heima, sakna þess skoo mikið bara vera alveg út af fyrir sig =) hljómar ekkert rosa stuð en mér fannst þetta rosa indællt.
  • Er að fara til Antwerpen að versla með Veeru og Ástu á laugardaginn, Elska flæmsku hlutan og flæmsku vá, í skólanu í dag var ég að lesa bók á flæmsku sem vinur minn var að lesa og ég veit ekki hvað ég er að gera hérna það væri svo miklu einfaldara að læra flæmsku haha, þetta er mjög líkt þýsku nema auðveldara, minna um málfræði reglur, en ég held nú samt að franskan eigi eftir að koma sér betur.En gæti alveg hugsað mér að læra flæmsku, skyl ekki afhverju svona margir hata þetta tungumál? Fer svo í keilu og út að borða með Gauthier má sunnudaginn.
  • Fer í jólafrí 12. des. bara æði byrja í prófum eftir 2 vikur held ég, annars er mér nett sama þarf bara að taka 4 próf ætla að taka ensku, sem er bara ísí, þýsku,sem gæti reynst pínu trikkí en ég held að ég nái henni, mér hefur allavegana gengið vel hingað til, fékk 8/10 í einu rófinu en 5/10 í seinasta. Veit ekki alveg hver hin 2 verða er að hugsa um bara landafræði og listasögu
  • Vá hvað bekkjasystkini mín svindla mikið í stæ prófum hef verið að fylgjast með þeim því undanfarið erum við alltaf í stæ prófum og ég skyll ekkert hvað við erum að gera svo ég hef ekki mikið annað að gera en stara út í loftið eða lesa eða skrifa eitthvað, og það er mjög finndið að sjá tæknina hjá þeim haha
  • Jenný ætlar svo að koma til mín í febrúar og pabbi minn ætlar að tala við vin sinn sem er læknir og biðja hann um að skrifa vottorð upp á að ég sé veik svo ég geti varið öllum mínum stundum með Jennsu minni :*
Já ég hef það rosalega gott og er bara hrikalega spennt að hitta Jenný mína er að fara að kaupa miða á morgun kaupi mér kanski bara svona passa fyrir evrópu því ég á örugglega eftir að ferðast mikið þetta árið til Amsterdag og já Disney land og París aftur og fleira.
Og vá Aron hvað ég sakna þín líka :* var að hlusta á Mew og MGMT þegar ég var að skrifa þetta blogg og það er svo mikið ég og þú elska þig óendalega og hlakka til að búa með þér næsta vetur, í alvörunni ég var að tala við Jenný á skype um dagin og við vorum farnar að innrétta íbúðina okkar haha 
Sakna ykkar allra 

Kreppa Skreppa

01. nóvember 2008 klukkan 17:56
já það er rétt ég er búin að vera í viku fríi, sem er bara búið að vera æðislegt byrjaði bara með því að taka helgina rólega með systrum mínum og fór svo í bíó í Brussel fokk! hvað það er stórt 27 salir. En allaveganna fór svo til Antwerpen á þriðjudaginn og Ásta kom með, falleg borg, fórum í gyðingahverfið þar vá finndið eins og annar heimur, fundum líka geggjaða second hand búð og ég keypti mér AWSM sólgleraugu=)
Miðvikudagsmorguninn fór ég til Parísar vávává verð að fara þangað aftur því þetta var bara dagsferð en ég sá ýmislegt og fór á toppinn á Eiffel turninum=) Þeð var samt eitt mjög finndið, vorum fyrir utan Luvr safnið og bara þarna fyrir utan safnið er mynd af Sirkus, staðunum sem var í Reykjarvík við Ásta réðum ekki kæti okkar!^^ 
fór svo á fimmtudagin með fjölskyldunni minni í húns sem "amma og afi" eiga alveg við landamærinn á luxembourg og vá það snjóaði =) JÁ þegar ég fór út á fimmtudagsmorguninn, þegar við vorum á leiðinni þá snjóaði en það var nú ekkert mikið fór bara strax en það gladdi nú samt mitt litla íslenska hjarta að fá smá snjó. En á leiðinni til "ömmu og afa" þá tókum við bensín í Luxembourg, það er nefnilega ódýrara og keyrðum göru sem öðrumegin er Belgía og hinumegin Luxembourg mjög finndið! Svo er það Bang Gang á morgun ég og Ásta keyptum okkur miða=) og Sigurrós eftir 2 vikur. Fór í matarboð í gær hjá guðföður bróðurminns fínasta boð:) geggjaður matur og kallin hafði mikið áhuga á íslendi og langar og hjóla í kringum Ísland, ég hló bara af honum.
Franskan gengur alltaf betur og betur og ég er farin að skylja ótrúlega mikið en finnst erfitt að tala hana og stundum er ég ótrúlega pirruð og mér finnst krakkarinr í skólanum vera að ætlast til of mikils af mér þokkalega pirrandi, mig langar bara mest að segja þeim að fara til íslands og tala íslensku! ^^  nei nei þau eru samt fín og kanski bara gott fyrir mig.
úff það er svoltið langt síðan ég bloggaði síðast svo ég man bara ekkert hvað ég er búin að vera að gera... ég fór á næst stærsta beer fest í Evrópu 24h vélo það var mjög gaman hitti fullt af mínum elskulegu skiptinemum :* og já drakk bjór...þetta er ekkert smá mikil geðveiki sko! fokk mikið fólk sko! 3 risa svið og önnur minni út um allt og bjór út um allt og skórinr mínir ógeð eftir þetta allir í drullu.

jájá annars sakna ég Íslands rosa mikið og vorkenni ykkur rosalega á ástandinu sem er núna heima. Er svo mikið búin að átta mig á hvað ég elska ísland mikið og haha vá sakna Dalvíkur en hef það rosa gott hérna og elska að vera hérna!

Reyni að vera duglegri að blogga

Sigur Rós 16. nóv #$%&%%$#&

10. október 2008 klukkan 22:10
jæjja gott fólk, vegna mikilla eftirspurna hef ég ákveðið að gefa ykkur hérna eitt gott blogg=) en ég vill byrja á því að tileinka þetta blogg henni Jennsu minni sem verður 18 ára á morgun og er stödd í Sviss, skemmtu þér rosa vel annað kvöld vildi að ég gæti verið hjá þér:* er reyndar orðin 18 því klukkan er yfir miðnætti þegar ég byrti þetta blogg Tilhamingu Jennslan mín, Elska þig:*

Ég vill nú ekkert vera að monta mig en ég er semsagt að fara á Sigurrós tónleikana í Bruxelles 16 nóv.=)=)=)
fékk síðustu miðana "OMG" var semsagt bara að skoða á netinu hvar ég gæti fengið miða og pabbi minn var að skoða þetta með mér og þá sáum við að það var uppsellt en hann hringdi bara strax í Forest National ( þar sem tóleikarinr verða) og þá voru jú nokkrir miðar eftir svo ég var að tala við Veeru á sama tíma og hún vildi endilega koma svo ég keypti 2 miða fyrir okkur og þá voru bara 2 eftir, órtúlega spennt að fara=)=) víííííí!!!  

Á föstudaginn seinasta þegar ég kom heim úr skólanum bað mamma mín mig um að koma inn í eldhús og þá hafði hún keypt fisk og bað mig um að hjá lpa sér, keypti meira að segja einn sem ég þurfti að flaka og allt, þetta var allt saman mjög spes því ég hef aldrei í lífinu eldað fisk en ég reddaði þessu og eldaði fiskin alveg sjálf og þeim fannst hann alveg geggjaður=) ég var nú ekkert að segja þeim að þetta var fyrsta skiptið mitt haha en ég var mjög stolt að mér. Um kvöldið vorum við sistkynin að spila og drukkum sítrónu skot og svo gerði pabbi heitt súkkulaði handa mér og Fann, elska fjölskylduna mína líður svo vel hjá þeim, alveg best sko=)

Emilie bekkjó bauð mér og Leigh Ann í eitthvað partý á laugardaginn, eitthvað skátapartý, það er ekki eins lúðalegt og það hljómar hérna er málið að vera í skátunum, virkar allt öðruvísi, en það var í Louvain la Nouve þannig að við gistum hjá systrum mínum og fórum bara á einhverja bari og svo kíktum við þarna og það var rosa party DJ og bar og svona en við stoppuðum nú ekkert lengi, Leigh Ann er svo finndin hún hefur aldrei farið í partý með áfengi fyrr en hún kom hingað því jájá þið vitið hvernig þetta er í USA og ef maður er í partý þar sem er verið að drekka þótt þú sért edrú geturu lent í miklu klandri og sérstaklega ef þú ert að æfa einhverja íþrótt sem hún gerði svo það var ekki þess virði fyrir hana að gera það svo hún fer bara í edrú partý í usa, haha finndið hún er svo mikill lúði algjör dúlla er með trúlofunarhring á sér því hún ættlar ekki að ríða neinum fyrr en hún er gift, mjög amerísk:) hef mjög gaman af henni.

Hitti trúnaðarmanninn minn á þriðjudaginn vá algjör snillingur, var skipti nemi í finnlandi, hitti hann bara strax eftir skóla og fórum á einhvern danskan bar og hann bauð mér upp á kokteil l´homme de la lune eða karlinn í tunglinu og svo bauð hann mér út að borða og vinur hans borðaði með okkur og jamm þeir  helltu eiginlega bara í mig, haha fórum svo aftur á barinn og þeir voru að reyna að fá mig til að singja á íslensku fyrir þá, jamm mjög skemtilegt þriðjudags kvöld mætti svo eldkress í íþróttir á miðvikudagsmorgni, vá ég hata þessa tíma vorum í prófi í einhverjum bolltaleik sem við erum alltaf í, einkennist af því að við erum 2 lið og köstum á milli innan liðsins eins lengi og við getum og eins og þið flest vitið er ég ekki mjög virk í skólaíþróttum svo já íþróttakennarinn stöðvaði leikið til að segja mér að ég yrði að hreifa mig meira, getið rétt ímyndað ykkur hvað það var frábært haha.

Það er búið að ákveða hvert við förum í útskriftaferð, get vaið um Tyrkland eða Barcelona og þetta er frekar dýrt þannig að núna þarf ég að leggja höfuð í bleiti og ákveða hvað ég vill gera því svo er ég að fara í MA útskriftaferðina þegar ég kem heim svo ég get ekki farið í báðar, sérstaklega ekki á meðan allt er eins og það er í peningamálim á íslandi, Tyrklandsferðin kostar 117 þúsunð ISKR þannig að ég held að ég finni mér frekar eitthvað ódýrt flug á netinu og fljúgi til Köru um páskanna =) og fari í MA ferðina, myndi ekki vilja missa af henni þó ég fari í 2 :) JEBB JEBB! 

Talandi um Ísland þá erum við mjög mikið í fréttum héran þýsku kennarinn minn kom  með dagblað í tíma um daginn því það var verið að tala um ísland á einni síðu og hvað allt er slæmt þar og svo var líka verið að kynna ísland, segja frá Sigur Rós, Björk, Múm og fleira. 
Í aukafrönskutímunum sem ég fer í er ein Kínversk stelpa sem hefur samt búið í USA í nokkur ár og er búin að vera hérna í Belgíu í 1 ár og þegar ég sagði henni að ég væri frá íslandi var hún bara what iceland er það land bara vá afhverju myndi einhver skýra landið sitt Iceland og vissi ekkert hvar það var, mjög gaman af því, hversu glær þarf maður að vera, því ég meina það er frá Kína búin að búa í USA kann fullkomna ensku og er búin að vera í Belgíu í meira en ár kann jafn mikið og ég sem er búin að vera héran í 1 og 1/2 mánuð og hefur aldrei heyrt talað um Ísland!

Vorum í frönsku tíma í gær að horfa á mynd á spænsku með frönskum texta og ég skyldi nánast allt=) með því að lesa textan svo stolt af mér=) Fjölskyldan mín er líka mjög ánægð með mig segja að ég sé farin að skylja rosa mikið, en vá þetta er eitt tungumál sem er erfitt fyrir mig að tala, ég ákvað samt að á þriðjudaginn skyldum við Leigh Ann ekki tala neitt nema frönsku það gekk ágætlega þurftum samt stundum að nota enskuna, og töluðum kenski ekkert rosa mikið haha.

Vinir mínir í skólanum eru stundum að reyna að tala íslensku taka orðabókina mína og eru eitthvað að reyna svo finndið,krakkarnir eru bara svo finndnir hérna. og í þýsku er ég alltaf að kenna þeim íslensku og að segja þeim eitthvað frá íslandi, sagði þeim um daginn að við værum aðeins 300.000 og þau bara vó, kennarinn minn átti mjög erfitt með að trúa því. Sam langar líka geggjað að læra íslensku og hann ætlar að koma að heimsækja mig til íslands bráðum hann var að skipurleggja í gær hvernig hann ætti að koma. Um dagin var líka einn vinur minn að tala við mig á frönsku og ég skildi hann ekki neitt og hann héllt bara áfram svo ég fór bara að tala við hann á íslensku og áður enn ég vissi af vorum við að öskra hvort á annað á sitthvoru tungumálinu.

En ef ég tala um fólkið hérna svona yfir höfuð þá eru Belgar mjög kurteist og finndið fólk fullt af húmori  og strákarin opna hurðir og svona fyrir stelpum og fólkið hérna er heldur ekkert að fela tilfinningarnar sínar en þannig á það auðvitað að vera, ég er búin að sjá svoltið oft fólk bara úti á götu eða í skólanum gráta t.d. í gær eftir þýskutíma var ég og ein bekkjarsystir mín eftir í stofunni með kennaranum og hann var að kveðja okkur og sagði baraa við Judy að eiga góðan dag og hún bara greyjið fór bara að skæla. Svo er maturinn bara rosalega góður það er náttlea besta súkkulaði í heima hérna og vöfflurnar eru bara hættulega góðar, franskar og jújú 5000 bjórtegundir eða svo. Svo er mikið um afrískan mat eða frá Marrakkó mjög gott, maturinn samt mikið franskur og ítalskur og svo eitthvað sérstakt belgískt. en ég var samt að kaupa mér ræktarkort svo ég ætti ekki að koma svo feit heim=) veit ekki hvað þetta er með skiptinema og hugsa svona mikið um að borða, kanski er þetta bara eitthvað við að kynnast nýrri menningu ég veit það ekki, kanski er maður pínu einmanna og leitar huggun í mat, haha veit það ekki.
Var á leiðinni í skólann um daginn og þá var ég stoppuð af einhverjum strák og hann héllt á feitri jónu og hann spurði mig hvort ég myndi reykja gras og ég sagði bara nei og hann bara damn, mjög spes veit ekki afhverju hann vildi svona mikið að ég myndi reykja gras.

Fór ekki í skólann á mánudaginn því lestakerfið og allar svona almenningssamgöngur voru í verkfalli, næs. Fór heldur ekki í skólann í dag var lasin svo ég var bara að chilla það var geggjað gott verður svo ég var bara útí garði að chilla með geitunum=) við vorum líka að fá fyrstu uppskeruna af eplunum okkar og svo einhverjar hnetur og vínber very nice.
 Jájá hvað get ég sagt? það er svo margt en jamm kvöldið í kvöld var mjög rólegt þar sem ég var "veik" svo við vorum að spila og hlusta á abba plötu og borða súkkulaði haha.
Er svo að fara í einhverja 2 tíma göngu með mömmu minni á morgun um skóginn héran víst rosa fallegt ég tek kanski nokkrar myndir fyrir ykkur.
 
Jebb jebb 

Mánuđur

22. september 2008 klukkan 19:33
Þá er ég búin að vera hér í mánuð, OMG hvað það er skrýtið, áður en ég veit af verð ég sjálfsagt komin heim.
Ég veit aldrei hvað ég á að skrifa í svona blogg, það er svo margt sem ég er að upplifa hérna ég gæti aldrei sagt frá öllum upplifunum mínum hérna í þessu littla bloggi.

Þessa dagana er ég bara í því að bonda við krakkana hénra í skólanum og er mikið með strákunum í bekknum mínum og einn vinur minn hérna Nicola tilkynnti mér það um daginn að ég væri vinkona hans og ég gæti alltaf talað við hann, hann mætti reyndar líka um daginn í stæ eftir hádegi og sast hliðina  á mér og fór að segja mér að hann væri skakkur, haha þá hefði hann verið að reykja jónu í hádeginu, what the fuck?
En ég hafði rosalega gaman af honum, klárlega besti stæ tíminn sem ég hef verið í haha. 
Ég er líka í því að kynna Sigur Rós fyrir öllum=) og dreifa geisladiskum með lögunum þeirra, einn bekkjarbróðir minn hérna hlusat á Sigur Rós en ég hef ekki hitt neinn annan í skólanum sem hlustar á Sigur Rós. 
Á miðvikudaginn seinasta ákvað ég að flippa aðeins, Veera senti mér sms um hádegi þegar ég var búin í skólanum og spurði mig hvort ég vildi koma til Liège, svo við ákváðum að skreppa og tókum næstu lest þangað og það tók góðar 75 min en í Liège hittum við svo Anniinu líka finnsk, en enginn okkar hafði komið áður til Liège svo þetta var mjög áhugaverð ferð, við komumst að því að það var nú ekki mikið að sjá í þessari borg, ætli maður þurfi ekki að hafa einhvern með sér sem þekkir hana. En engu að síður góð ferð.
Helgin mín var awsome, fór eftir skóla til Brussel til Lauru vinkonu minnar og gisti hjá henni, við kíktum aðeins á djammið í Brussel=) Jájájájájájájá, svo á laugardagskvöldið fór ég til Namur þar var risa festival fleir þúsund manns, og þar var geggjuð flugelgasýning (Fiskidagurinn mikili hvað?) það var spiluð tónlist í takt við flugeldanna og þar voru lög á borð við bleika pardussar lagið, Indiana Jones langið og Celine Dion lag ásamt fleiru.
Ég er einnig búin að hjóla alveg óheyrilega mikið síðan ég kom hingað, hjólaði 25 KM í gær=) það var Brussel án bíla dagur og ég og Pabbi Emilie og Celine fórum, það var ótrúlega gaman og maður sá líka Brussel enþá betur og hvað þetta er falleg borg. seinasta sunnudag hjólaði ég líka 19 km en ég er búin að láta myndir af því og það eru fleiri myndir on the way.

what do you know?

09. september 2008 klukkan 16:24
06.10.2005 19:32:00

já komiði sæl og blessuð... það er nú komin tími til að blogga ég verð að taka mig á. já allavega í dag er ég eigilega bara búin að vera í tölvunni, var að látta nýtt forrit til að downloda og er búin að vera að láta lög á ipod-ið mitt sem ég vann í engjaþykkninu=) svo er ég að fara inn á ak. þegar ég er búinn í skóanum á morgun að versla (loksins) já svo er ég nú bara kanski að fara sem skiptinemi með AFS=)=)=) til spánar eða eitthvað næsta vetur eða þarnsæta ....það verður ótrúlega gaman en ég hvað að sinni Andri er kominn hittumst heim;)

HAHA rakst inn á gömlu síðuna mína í gær, vá kjánahrollur, las öll bloggin frá 2004 og þar fann ég meðal annars þetta. Aldrei hefði mér grunað að ég hefði endað með að fara til Belgíu, svona er nú lífið skemtilegt. Ég mæli með að þið skoðið gömju síðurnar ykkar, ég ælaði svo að fara að skoða folk.is síðuna mína, þegar maður var alveg á hápunkti gelgjunnar, en það virðist ekki vera hægt.

Það er allt gott að frétta af mér er byrjuð í skólanum, er í kaþólskum einkaskóla í bænum Wavre, skólinn minn heitir Institut de la Providence, og mér líður rosa vel í skólanum allir eru svo vingjarnlegir, það vill líka svo skemtilega til að skólinn hans bróðurmíns er nánast við hliðina á mínum svo við tökum lestina saman á morgnanna. Fyrsti skóladagurinn minn var bara ágætur mætti klukkan 10 og fór í stofu með umsjónarkennaranum og bekknum mínum, sast hliðiná tveim stelpum, og þær hjálpuðu mér í gegnum þetta með þeirra litlu ensku kunnáttu og önnur þeirra sem heitir Coraline er búin að vera að hjálpa mér í gegnum fyrstu dagana hérna, hún skrifaði stundartöfluna niður fyrir mig, kennarinn les hana upp og nemendurnir skrifa hana niðurÓákveðinn.  Á morgnanna þegar ég mæti í skólann mætir mér rólega kossaflóðið, hér er semsagt heylsast með einum kossi á kynnina, voðalega indællt svona í morgunsáriðHlæjandi jafnvel fólk sem ég hef aldrei talað við.



 

LUNDI

MARDI

MERCREDI

JEUDI

VENDREDI

8H30-9H20

anglais 4G1

sciences S.2

Gym

allemand L.1

 

9H20-10H10

anglais 4G1

allemand L.1

Gym

anglais L.1

sciences S.2

10H10-11H00

math aud

franç SA

allemand L.1

math SA

religion S.2

11H00-11H15

F

R

Í

M

Ó

11H15-12H05

geograph aud

 

allemand L.1

math SA

franç 4G5

12H05-12H55

religion L.3

geograph aud

 

franç SC

franç 4G5

12H55-13H45

M

A

T

U

R

13H45-14H35

Sciences S.2

Historie

 

 

math SA

14H35-15H25

Historie de

 

 

anglais L.1

15H25-16H15

l´art

 

 

historie



Stundartaflan mín er voða fín eins og þið sjáið, bjóst við að vera lengur í skólanum og í báðum eiðunum mínum er Lean (rotary skiptinema stelpan frá Californíu) líka í eyðu=)
Ég er að elska þýsku og ensku tímana mína, í þýsku erum við 5 stelpur og allar byrjendur svo mér ætti að ganga vel því ég hef dönsku og íslensku. Þýsku kennarinn minn var allavega voða ánægður með mig í seinasta tíma þegar við vorum að lesa upp á þýsku=), hann sagðist bera mikla virðingu fyrir mér fyrir að koma hingað. Svo er enskan náttúrulega bara ísý písý. Er með Leann í ensku hún er algjört æði erum líka saman í lista sögu. Er líka geggjað að bonda við strám sem heitir Samuel(sam) hann er með mér í ensku, mjög fínn og hann smíðar gítara, það er áhugamál hans.

Í gær komu nokkrar bekkjarsystur mínar til mín sem ég hafði ekki talað við áður, að tala við mig, sögðu svo we just wanted to talk to you we think you look nice, þær sögðust svo ætla að finna handa mér kærasta þegar ég sagðist ekki eiga kæró. Svona er fólkið indislegt hérna og vill allt fyrir mann gera haha
Ég er að elska súkkulaðið hérna, það er hættulega gott, ég er hrædd um að ég rúlli heim mér finnst ég strax byrjuð að fitna, ég er meira að segja að borða súkkulaði núna, ég og Leann fórum í eyðunni okkar áðan að fá okkur að borða, fundum bakarí og keyptum okkur eitthvað súkkulaði sætabrauð sem ég elska en veit ekki hvað það heitir, ég veit ekki hvað ég er búin að éta mikið af þessu síðan ég kom, allavega á meðan við gæddum okkur á þessu sagði hún mér að rotary skiptinemarnir frá USA sem voru í Belgíu í fyrra höfðu þingst að meðaltali um 30 pounds enð 13,6 KG OMG það er rosalegt! jebb ég kem feit heim. En sem betur fer eru ekki franskar með öllu heima hjá mér ég er bara búin að fá 1x franskar með matnum og er bara þokkalega sátt með það, Leann fær það í annaðhvort mál. En það er mæjó með hverri máltíð hérna en ég er nú ekki mikið fyrir það svo ég er bara í góðum málum, svo er fjölskyldan mín bara mjög heylsusamleg, og haha umhverfisvæn, ég elska það það er aldrei neinum mat hent það er alltaf einhver sem étur hann ef það erum ekki við þá eru það kéttirnir, geiturnar eða hænurnar, og allt er flokkað og svo erum við með lífræna ruslatunnu líka, haha og mamma mín lét mig fá vekjaraklukku því hún vildi ekki að ég svæfi með síman nálægt mér, það væri svo óhollt fyrir mig, krútt? Það stittist í að eplin okkar fari að vera til, vá hlakka til og allt hitt, kyrsuberin, plómurnar, perurnar og ég veit ekki hvað og hvað meira að segja grasker. 

Ég fór að versla um helgina=) vííí! fór í H&M Zöru og Vera Moda en varð að segja að það er bara ekkert varið í Zöru og Vera Moda hérna svo ég verslaði mér bara í HM misti mig alveg en keypti mér samt ekki mikið, bol, gollu, peysu og skokk ógó sátt;) Annars var helgin mín rosalega róleg hitti foreldra mömmu minnar á sunnudeginum, og þau eiga geggjað sætan hund, svona lítill hvítur og flöffí, fjölskyldan mín átti hann upprunalega en nú eru þau með hann:(
Er að fara í leikhús með bekknum mínum annað kvöld, það ætti nú að vera gaman, á ekki eftir að skylja neitt. Svo er það Brussel á laugardaginn er að fara í skúkkulaði gerð og bruggverksmiðju með BRABANT AFS-urunum.
Ég sakna svo íslensks smjörs og ost og mjólk, fjölskyldan mín kaupir eitthvað soyja smjör sem er alveg óætt svo ég fæ mér brauð með aðeins áleggi, nú eða súkkulaði=)

húff þetta er svo sannarlega lengsta bloggið sem ég hef nokkurntíma bloggað svo ég læt þetta duga í bili

Ást og friður :*

Alexandra

Vika

29. ágúst 2008 klukkan 13:17
jæjja þá er ég búin að vera hérna í viku, skólin byrjar á þriðjudaginn, en ég er ekki enþá komin inn í neinn skóla en þetta reddast. Það er margt búið að gerast þessa viku, og fjölskyldan mín er svo sæt, ég er geggjað að bonda við bróðir minn hann Benoit hann hlustar á svipaða tónlist og ég og talar smá ensku=) 
Við fórum um daginn í bæ hérna rétt hjá, bærin sem Celine og Emilie (systur mínar búa) mjög spes bær þar sem 50% af íbúunum þar eru nemar en þar sá ég HM búð og Vera Moda og Zöru svo ég ætti að geta verslað mér eitthvað þar:) 

Mér er boðinn bjór eða eitthvað áfengi hérna á hverju kvöldi og krakkarninr hérna byrja að drekka 12 ára en þá að sjálfsögðu drekka þau sig ekki full. Svo er Canabis löglegt hérna nema það má ekki selja það svo já það er mikið um að fólk sé bara út á götu að reykja Jónu, mjög finndið. Í gær fór ég til Brussel og vá það er sko faleg borg fullt af þröngum strætum og löngum og mjóum krúttlegum húsum, já í Brussel hitti ég semsagt alla skiptinemana á mínu svæði sem var mjög gaman komst að því að Veera stelpa frá Finnlandi býr bara rétt hjá mér í bænum sem systur mínar búa svo við ætlum að hittast og gera eitthvað saman.

Ég var að hitta systur mína Celine í fyrstaskiptið áðan hún er voða fín húnvar í Svíþjóð sem skiptinemi í 1 ár og talar ensku en samt lélega en við skiljum hvor aðra:) við ætlum eitthvað út í kvöld svo það er bara gaman. Ég og Jenný erum búnar að fá leyfi hjá fjölskyldum okkar um að fá að hittast ég fer til hennar í nóvember og hún kemur svo til mín eftir áramót, nú á AFS bara eftir að samþykkja. 

Elska ykkur og sakna ykkar
Alexandra

p.s. haha geiturnar eru alveg að missa það hérna úti í fyrsta skipti síðan ég kom að ég heyri í þei inn í herbergið mitt hhaha svo krúttlegar

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Alexandra Arnardóttir
  • Netfang: alexa_arnard@hotmail.com
  • Stađur: Villers-la-Ville
  • Heimilisfang: Rue de la Houlette 7

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

endurfundir lexu og jexu