Aðalvalmynd

Vika

29. ágúst 2008 klukkan 13:17
jæjja þá er ég búin að vera hérna í viku, skólin byrjar á þriðjudaginn, en ég er ekki enþá komin inn í neinn skóla en þetta reddast. Það er margt búið að gerast þessa viku, og fjölskyldan mín er svo sæt, ég er geggjað að bonda við bróðir minn hann Benoit hann hlustar á svipaða tónlist og ég og talar smá ensku=) 
Við fórum um daginn í bæ hérna rétt hjá, bærin sem Celine og Emilie (systur mínar búa) mjög spes bær þar sem 50% af íbúunum þar eru nemar en þar sá ég HM búð og Vera Moda og Zöru svo ég ætti að geta verslað mér eitthvað þar:) 

Mér er boðinn bjór eða eitthvað áfengi hérna á hverju kvöldi og krakkarninr hérna byrja að drekka 12 ára en þá að sjálfsögðu drekka þau sig ekki full. Svo er Canabis löglegt hérna nema það má ekki selja það svo já það er mikið um að fólk sé bara út á götu að reykja Jónu, mjög finndið. Í gær fór ég til Brussel og vá það er sko faleg borg fullt af þröngum strætum og löngum og mjóum krúttlegum húsum, já í Brussel hitti ég semsagt alla skiptinemana á mínu svæði sem var mjög gaman komst að því að Veera stelpa frá Finnlandi býr bara rétt hjá mér í bænum sem systur mínar búa svo við ætlum að hittast og gera eitthvað saman.

Ég var að hitta systur mína Celine í fyrstaskiptið áðan hún er voða fín húnvar í Svíþjóð sem skiptinemi í 1 ár og talar ensku en samt lélega en við skiljum hvor aðra:) við ætlum eitthvað út í kvöld svo það er bara gaman. Ég og Jenný erum búnar að fá leyfi hjá fjölskyldum okkar um að fá að hittast ég fer til hennar í nóvember og hún kemur svo til mín eftir áramót, nú á AFS bara eftir að samþykkja. 

Elska ykkur og sakna ykkar
Alexandra

p.s. haha geiturnar eru alveg að missa það hérna úti í fyrsta skipti síðan ég kom að ég heyri í þei inn í herbergið mitt hhaha svo krúttlegar
 
Sæunn
Hi sæta :)
Gaman að lesa fréttir frá þér!
Haltu áfram að skemmta þér og upplifa allt þetta frábæra!

Knús
Sæunn
#1
29. ágúst 2008 klukkan 16:26
hahha vá mig langar líka í svona geitur.. ég elska geitur.. get ekki ímyndað mér hljóðið úr þeim!!
annar skemmtu þér nú vel og gott að hljóðir er svona gott í þér núna, just flipp my girl... svo verður ógó gaman þegar þú kemur til Sviss, vinir Raphael, eru mjög ánægðir að fá fleiri ísl stelpur.. haha ;) svo þú er meira en velkominn my baby girl.. love love
#2
30. ágúst 2008 klukkan 09:32
Sæl vinkona :) Ánægjulegt að þér skuli vera farið að líða betur :) Satt best að segja stóð mér alls ekki á sama eftir samtalið okkar svo það gleður mig að þér líði vel :) Ég hugsa hlýlega til þín og hlakka til að sjá þig aftur :)

Bestu kveðjur frá Akureyri

Magni Þór
#3
01. september 2008 klukkan 16:15
 
Mamma
Hæ elskan

Gangi þér vel í skólanum á morgun.
Vonandi á þér eftir að líða vel þar.

Kveðja mamma
#4
01. september 2008 klukkan 22:59
Hallo astin, gaman ad heyra ad allt se ad ganga upp, en eg aetla ad blogga a gomlu sidunni minni, evamm.blogcentral.is. Byrja i vikunni, lofa haha

Elska tig mest
#5
08. september 2008 klukkan 18:13

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Alexandra Arnardóttir
  • Netfang: alexa_arnard@hotmail.com
  • Staður: Villers-la-Ville
  • Heimilisfang: Rue de la Houlette 7

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

endurfundir lexu og jexu