vá ég var alveg í rugli fyrst þegar ég var að lesa bloggið þitt:P haha
een gott að það er farið að vera betra þarna úti:D oog trúðu mér þú verður ekki sú eina sem kemur feit heim .. haha ;D maður þarf að smakka allt !
haltu áfram að blogga:D gaman að fylgjast með
skemmtuþér :*
what do you know?
09. september 2008 klukkan 16:24
06.10.2005 19:32:00
HAHA rakst inn á gömlu síðuna mína í gær, vá kjánahrollur, las öll bloggin frá 2004 og þar fann ég meðal annars þetta. Aldrei hefði mér grunað að ég hefði endað með að fara til Belgíu, svona er nú lífið skemtilegt. Ég mæli með að þið skoðið gömju síðurnar ykkar, ég ælaði svo að fara að skoða folk.is síðuna mína, þegar maður var alveg á hápunkti gelgjunnar, en það virðist ekki vera hægt.
Það er allt gott að frétta af mér er byrjuð í skólanum, er í kaþólskum einkaskóla í bænum Wavre, skólinn minn heitir Institut de la Providence, og mér líður rosa vel í skólanum allir eru svo vingjarnlegir, það vill líka svo skemtilega til að skólinn hans bróðurmíns er nánast við hliðina á mínum svo við tökum lestina saman á morgnanna. Fyrsti skóladagurinn minn var bara ágætur mætti klukkan 10 og fór í stofu með umsjónarkennaranum og bekknum mínum, sast hliðiná tveim stelpum, og þær hjálpuðu mér í gegnum þetta með þeirra litlu ensku kunnáttu og önnur þeirra sem heitir Coraline er búin að vera að hjálpa mér í gegnum fyrstu dagana hérna, hún skrifaði stundartöfluna niður fyrir mig, kennarinn les hana upp og nemendurnir skrifa hana niður
. Á morgnanna þegar ég mæti í skólann mætir mér rólega kossaflóðið, hér er semsagt heylsast með einum kossi á kynnina, voðalega indællt svona í morgunsárið
jafnvel fólk sem ég hef aldrei talað við.
. Á morgnanna þegar ég mæti í skólann mætir mér rólega kossaflóðið, hér er semsagt heylsast með einum kossi á kynnina, voðalega indællt svona í morgunsárið
jafnvel fólk sem ég hef aldrei talað við.|
| LUNDI | MARDI | MERCREDI | JEUDI | VENDREDI |
| 8H30-9H20 | anglais 4G1 | sciences S.2 | Gym | allemand L.1 |
|
| 9H20-10H10 | anglais 4G1 | allemand L.1 | Gym | anglais L.1 | sciences S.2 |
| 10H10-11H00 | math aud | franç SA | allemand L.1 | math SA | religion S.2 |
| 11H00-11H15 | F | R | Í | M | Ó |
| 11H15-12H05 | geograph aud |
| allemand L.1 | math SA | franç 4G5 |
| 12H05-12H55 | religion L.3 | geograph aud |
| franç SC | franç 4G5 |
| 12H55-13H45 | M | A | T | U | R |
| 13H45-14H35 | Sciences S.2 | Historie |
|
| math SA |
| 14H35-15H25 | Historie de |
|
| anglais L.1 | |
| 15H25-16H15 | l´art |
|
| historie | |
Stundartaflan mín er voða fín eins og þið sjáið, bjóst við að vera lengur í skólanum og í báðum eiðunum mínum er Lean (rotary skiptinema stelpan frá Californíu) líka í eyðu=)
Ég er að elska þýsku og ensku tímana mína, í þýsku erum við 5 stelpur og allar byrjendur svo mér ætti að ganga vel því ég hef dönsku og íslensku. Þýsku kennarinn minn var allavega voða ánægður með mig í seinasta tíma þegar við vorum að lesa upp á þýsku=), hann sagðist bera mikla virðingu fyrir mér fyrir að koma hingað. Svo er enskan náttúrulega bara ísý písý. Er með Leann í ensku hún er algjört æði erum líka saman í lista sögu. Er líka geggjað að bonda við strám sem heitir Samuel(sam) hann er með mér í ensku, mjög fínn og hann smíðar gítara, það er áhugamál hans.
Í gær komu nokkrar bekkjarsystur mínar til mín sem ég hafði ekki talað við áður, að tala við mig, sögðu svo we just wanted to talk to you we think you look nice, þær sögðust svo ætla að finna handa mér kærasta þegar ég sagðist ekki eiga kæró. Svona er fólkið indislegt hérna og vill allt fyrir mann gera haha
Ég er að elska súkkulaðið hérna, það er hættulega gott, ég er hrædd um að ég rúlli heim mér finnst ég strax byrjuð að fitna, ég er meira að segja að borða súkkulaði núna, ég og Leann fórum í eyðunni okkar áðan að fá okkur að borða, fundum bakarí og keyptum okkur eitthvað súkkulaði sætabrauð sem ég elska en veit ekki hvað það heitir, ég veit ekki hvað ég er búin að éta mikið af þessu síðan ég kom, allavega á meðan við gæddum okkur á þessu sagði hún mér að rotary skiptinemarnir frá USA sem voru í Belgíu í fyrra höfðu þingst að meðaltali um 30 pounds enð 13,6 KG OMG það er rosalegt! jebb ég kem feit heim. En sem betur fer eru ekki franskar með öllu heima hjá mér ég er bara búin að fá 1x franskar með matnum og er bara þokkalega sátt með það, Leann fær það í annaðhvort mál. En það er mæjó með hverri máltíð hérna en ég er nú ekki mikið fyrir það svo ég er bara í góðum málum, svo er fjölskyldan mín bara mjög heylsusamleg, og haha umhverfisvæn, ég elska það það er aldrei neinum mat hent það er alltaf einhver sem étur hann ef það erum ekki við þá eru það kéttirnir, geiturnar eða hænurnar, og allt er flokkað og svo erum við með lífræna ruslatunnu líka, haha og mamma mín lét mig fá vekjaraklukku því hún vildi ekki að ég svæfi með síman nálægt mér, það væri svo óhollt fyrir mig, krútt? Það stittist í að eplin okkar fari að vera til, vá hlakka til og allt hitt, kyrsuberin, plómurnar, perurnar og ég veit ekki hvað og hvað meira að segja grasker.
Ég fór að versla um helgina=) vííí! fór í H&M Zöru og Vera Moda en varð að segja að það er bara ekkert varið í Zöru og Vera Moda hérna svo ég verslaði mér bara í HM misti mig alveg en keypti mér samt ekki mikið, bol, gollu, peysu og skokk ógó sátt;) Annars var helgin mín rosalega róleg hitti foreldra mömmu minnar á sunnudeginum, og þau eiga geggjað sætan hund, svona lítill hvítur og flöffí, fjölskyldan mín átti hann upprunalega en nú eru þau með hann:(
Er að fara í leikhús með bekknum mínum annað kvöld, það ætti nú að vera gaman, á ekki eftir að skylja neitt. Svo er það Brussel á laugardaginn er að fara í skúkkulaði gerð og bruggverksmiðju með BRABANT AFS-urunum.
Ég sakna svo íslensks smjörs og ost og mjólk, fjölskyldan mín kaupir eitthvað soyja smjör sem er alveg óætt svo ég fæ mér brauð með aðeins áleggi, nú eða súkkulaði=)
húff þetta er svo sannarlega lengsta bloggið sem ég hef nokkurntíma bloggað svo ég læt þetta duga í bili
Ást og friður :*
Alexandra
Kara Rún
gott að þér er farið að líða vel elskan en getum við haft skypefund bráðlega:D
love you<3
love you<3
#3
11. september 2008 klukkan 16:46
Sætasta, ég er bara ángæð með þig núna, og takk fyrir bréfið ;)
annars þá er ég líka stödd í þessu kossaflóði á morgnanna ..haha
annars þá er ég líka stödd í þessu kossaflóði á morgnanna ..haha
#4
14. september 2008 klukkan 12:41
haha Stína villtu ekki kvetja mig til þess að verða feit, þegar ég les þetta þá hugsa ég með mér, jájá það er allt í lagi að verða bara feit haha og það stefnir allt í það=)#5
15. september 2008 klukkan 16:18
Hihihihihi :o) já manstu ekki Alexandra hvað ég var alltaf að reyna að segja við þig þegar þú varst að hætta að borða nammi og bara almennt "í ruglinu" ;) ?
- FEITT ER FALLEGT !!!-
og svo slegið á rassinn eins og Grettir í "hey mama" laginu :o) Ég er líka að stefna í að gerast "belgísk" og er á góðri leið með það, enda bara meira að elska...og við dönsum þá bara saman við hey mama :)
En gott að þú ert að byrja að finna þig dúllan mín og tengjast fólkinu þarna :) njóttu bara og njóttu og njóttu þessa árs í botn og alls sem gerist, góðs eða slæms.
Lovjú lovjú elskið mitt :*
ps:..."ertu svangur eða langar þig í lærisneið, eitthvað sem að getur bjargað þér frá hungursneið.........svínabógur jebb jebb jebb, er hér nógur, jebb jebb jebb, svín eru fín jebb !" :o)
- FEITT ER FALLEGT !!!-
og svo slegið á rassinn eins og Grettir í "hey mama" laginu :o) Ég er líka að stefna í að gerast "belgísk" og er á góðri leið með það, enda bara meira að elska...og við dönsum þá bara saman við hey mama :)
En gott að þú ert að byrja að finna þig dúllan mín og tengjast fólkinu þarna :) njóttu bara og njóttu og njóttu þessa árs í botn og alls sem gerist, góðs eða slæms.
Lovjú lovjú elskið mitt :*
ps:..."ertu svangur eða langar þig í lærisneið, eitthvað sem að getur bjargað þér frá hungursneið.........svínabógur jebb jebb jebb, er hér nógur, jebb jebb jebb, svín eru fín jebb !" :o)
#6
15. september 2008 klukkan 22:48
Mamma
Hæ elsku dúllan mín
Gott að sjá að þér er farið að líða betur elskan mín. Og hrikalega var gott að tala við þig og sjá á laugardaginn. Sakna þín hrikalega mikið.
En er samt svo stolt af þér að vera þarna úti elskuleg.
Ástarkveðja Mamma
Gott að sjá að þér er farið að líða betur elskan mín. Og hrikalega var gott að tala við þig og sjá á laugardaginn. Sakna þín hrikalega mikið.
En er samt svo stolt af þér að vera þarna úti elskuleg.
Ástarkveðja Mamma
#7
16. september 2008 klukkan 01:57

Ég fæ alveg "back to the future" fíling af að lesa bloggið þitt hihihi :)
En Alexandra, það að "verða soltið belgískur" skiptinemaárið sitt er ekki það versta sem getur komið fyrir mann í lífinu, MUNDU ÞAÐ !!! Njóttu þess bara að upplifa og borða það sem þér finnst gott í Belgíu því þú átt eftir að eiga góðar minningar alla ævi um þennan tíma. Þá hefur maður líka í einhverju að vinna þegar heim er komið hihihi ;)
Guð veit að við Svana erum búnar að eiga langar minningastundir með bros á vör um allan góða matinn sem við borðuðum og fitnuðum um 20 kg af, ALSÆLAR og bara meira að elska :-D
Æðislegt að vita að þú ert að kynnast krökkunum og að þau séu svona góð við þig í skólanum. Svo gaman að kynnast nýju fólki og eignast vini, ó hvað ég öfunda þig ! Þetta er hunderfitt fyrstu 3 mánuðina, næstu 3 veit maður ekki hvernig manni á að líða og síðustu mánuðina er maður að plotta leið til þess að þurfa ekki að koma heim :)
Lovjú lovjú fallegastan mín