Ađalvalmynd

Sigur Rós 16. nóv #$%&%%$#&

10. október 2008 klukkan 22:10
jæjja gott fólk, vegna mikilla eftirspurna hef ég ákveðið að gefa ykkur hérna eitt gott blogg=) en ég vill byrja á því að tileinka þetta blogg henni Jennsu minni sem verður 18 ára á morgun og er stödd í Sviss, skemmtu þér rosa vel annað kvöld vildi að ég gæti verið hjá þér:* er reyndar orðin 18 því klukkan er yfir miðnætti þegar ég byrti þetta blogg Tilhamingu Jennslan mín, Elska þig:*

Ég vill nú ekkert vera að monta mig en ég er semsagt að fara á Sigurrós tónleikana í Bruxelles 16 nóv.=)=)=)
fékk síðustu miðana "OMG" var semsagt bara að skoða á netinu hvar ég gæti fengið miða og pabbi minn var að skoða þetta með mér og þá sáum við að það var uppsellt en hann hringdi bara strax í Forest National ( þar sem tóleikarinr verða) og þá voru jú nokkrir miðar eftir svo ég var að tala við Veeru á sama tíma og hún vildi endilega koma svo ég keypti 2 miða fyrir okkur og þá voru bara 2 eftir, órtúlega spennt að fara=)=) víííííí!!!  

Á föstudaginn seinasta þegar ég kom heim úr skólanum bað mamma mín mig um að koma inn í eldhús og þá hafði hún keypt fisk og bað mig um að hjá lpa sér, keypti meira að segja einn sem ég þurfti að flaka og allt, þetta var allt saman mjög spes því ég hef aldrei í lífinu eldað fisk en ég reddaði þessu og eldaði fiskin alveg sjálf og þeim fannst hann alveg geggjaður=) ég var nú ekkert að segja þeim að þetta var fyrsta skiptið mitt haha en ég var mjög stolt að mér. Um kvöldið vorum við sistkynin að spila og drukkum sítrónu skot og svo gerði pabbi heitt súkkulaði handa mér og Fann, elska fjölskylduna mína líður svo vel hjá þeim, alveg best sko=)

Emilie bekkjó bauð mér og Leigh Ann í eitthvað partý á laugardaginn, eitthvað skátapartý, það er ekki eins lúðalegt og það hljómar hérna er málið að vera í skátunum, virkar allt öðruvísi, en það var í Louvain la Nouve þannig að við gistum hjá systrum mínum og fórum bara á einhverja bari og svo kíktum við þarna og það var rosa party DJ og bar og svona en við stoppuðum nú ekkert lengi, Leigh Ann er svo finndin hún hefur aldrei farið í partý með áfengi fyrr en hún kom hingað því jájá þið vitið hvernig þetta er í USA og ef maður er í partý þar sem er verið að drekka þótt þú sért edrú geturu lent í miklu klandri og sérstaklega ef þú ert að æfa einhverja íþrótt sem hún gerði svo það var ekki þess virði fyrir hana að gera það svo hún fer bara í edrú partý í usa, haha finndið hún er svo mikill lúði algjör dúlla er með trúlofunarhring á sér því hún ættlar ekki að ríða neinum fyrr en hún er gift, mjög amerísk:) hef mjög gaman af henni.

Hitti trúnaðarmanninn minn á þriðjudaginn vá algjör snillingur, var skipti nemi í finnlandi, hitti hann bara strax eftir skóla og fórum á einhvern danskan bar og hann bauð mér upp á kokteil l´homme de la lune eða karlinn í tunglinu og svo bauð hann mér út að borða og vinur hans borðaði með okkur og jamm þeir  helltu eiginlega bara í mig, haha fórum svo aftur á barinn og þeir voru að reyna að fá mig til að singja á íslensku fyrir þá, jamm mjög skemtilegt þriðjudags kvöld mætti svo eldkress í íþróttir á miðvikudagsmorgni, vá ég hata þessa tíma vorum í prófi í einhverjum bolltaleik sem við erum alltaf í, einkennist af því að við erum 2 lið og köstum á milli innan liðsins eins lengi og við getum og eins og þið flest vitið er ég ekki mjög virk í skólaíþróttum svo já íþróttakennarinn stöðvaði leikið til að segja mér að ég yrði að hreifa mig meira, getið rétt ímyndað ykkur hvað það var frábært haha.

Það er búið að ákveða hvert við förum í útskriftaferð, get vaið um Tyrkland eða Barcelona og þetta er frekar dýrt þannig að núna þarf ég að leggja höfuð í bleiti og ákveða hvað ég vill gera því svo er ég að fara í MA útskriftaferðina þegar ég kem heim svo ég get ekki farið í báðar, sérstaklega ekki á meðan allt er eins og það er í peningamálim á íslandi, Tyrklandsferðin kostar 117 þúsunð ISKR þannig að ég held að ég finni mér frekar eitthvað ódýrt flug á netinu og fljúgi til Köru um páskanna =) og fari í MA ferðina, myndi ekki vilja missa af henni þó ég fari í 2 :) JEBB JEBB! 

Talandi um Ísland þá erum við mjög mikið í fréttum héran þýsku kennarinn minn kom  með dagblað í tíma um daginn því það var verið að tala um ísland á einni síðu og hvað allt er slæmt þar og svo var líka verið að kynna ísland, segja frá Sigur Rós, Björk, Múm og fleira. 
Í aukafrönskutímunum sem ég fer í er ein Kínversk stelpa sem hefur samt búið í USA í nokkur ár og er búin að vera hérna í Belgíu í 1 ár og þegar ég sagði henni að ég væri frá íslandi var hún bara what iceland er það land bara vá afhverju myndi einhver skýra landið sitt Iceland og vissi ekkert hvar það var, mjög gaman af því, hversu glær þarf maður að vera, því ég meina það er frá Kína búin að búa í USA kann fullkomna ensku og er búin að vera í Belgíu í meira en ár kann jafn mikið og ég sem er búin að vera héran í 1 og 1/2 mánuð og hefur aldrei heyrt talað um Ísland!

Vorum í frönsku tíma í gær að horfa á mynd á spænsku með frönskum texta og ég skyldi nánast allt=) með því að lesa textan svo stolt af mér=) Fjölskyldan mín er líka mjög ánægð með mig segja að ég sé farin að skylja rosa mikið, en vá þetta er eitt tungumál sem er erfitt fyrir mig að tala, ég ákvað samt að á þriðjudaginn skyldum við Leigh Ann ekki tala neitt nema frönsku það gekk ágætlega þurftum samt stundum að nota enskuna, og töluðum kenski ekkert rosa mikið haha.

Vinir mínir í skólanum eru stundum að reyna að tala íslensku taka orðabókina mína og eru eitthvað að reyna svo finndið,krakkarnir eru bara svo finndnir hérna. og í þýsku er ég alltaf að kenna þeim íslensku og að segja þeim eitthvað frá íslandi, sagði þeim um daginn að við værum aðeins 300.000 og þau bara vó, kennarinn minn átti mjög erfitt með að trúa því. Sam langar líka geggjað að læra íslensku og hann ætlar að koma að heimsækja mig til íslands bráðum hann var að skipurleggja í gær hvernig hann ætti að koma. Um dagin var líka einn vinur minn að tala við mig á frönsku og ég skildi hann ekki neitt og hann héllt bara áfram svo ég fór bara að tala við hann á íslensku og áður enn ég vissi af vorum við að öskra hvort á annað á sitthvoru tungumálinu.

En ef ég tala um fólkið hérna svona yfir höfuð þá eru Belgar mjög kurteist og finndið fólk fullt af húmori  og strákarin opna hurðir og svona fyrir stelpum og fólkið hérna er heldur ekkert að fela tilfinningarnar sínar en þannig á það auðvitað að vera, ég er búin að sjá svoltið oft fólk bara úti á götu eða í skólanum gráta t.d. í gær eftir þýskutíma var ég og ein bekkjarsystir mín eftir í stofunni með kennaranum og hann var að kveðja okkur og sagði baraa við Judy að eiga góðan dag og hún bara greyjið fór bara að skæla. Svo er maturinn bara rosalega góður það er náttlea besta súkkulaði í heima hérna og vöfflurnar eru bara hættulega góðar, franskar og jújú 5000 bjórtegundir eða svo. Svo er mikið um afrískan mat eða frá Marrakkó mjög gott, maturinn samt mikið franskur og ítalskur og svo eitthvað sérstakt belgískt. en ég var samt að kaupa mér ræktarkort svo ég ætti ekki að koma svo feit heim=) veit ekki hvað þetta er með skiptinema og hugsa svona mikið um að borða, kanski er þetta bara eitthvað við að kynnast nýrri menningu ég veit það ekki, kanski er maður pínu einmanna og leitar huggun í mat, haha veit það ekki.
Var á leiðinni í skólann um daginn og þá var ég stoppuð af einhverjum strák og hann héllt á feitri jónu og hann spurði mig hvort ég myndi reykja gras og ég sagði bara nei og hann bara damn, mjög spes veit ekki afhverju hann vildi svona mikið að ég myndi reykja gras.

Fór ekki í skólann á mánudaginn því lestakerfið og allar svona almenningssamgöngur voru í verkfalli, næs. Fór heldur ekki í skólann í dag var lasin svo ég var bara að chilla það var geggjað gott verður svo ég var bara útí garði að chilla með geitunum=) við vorum líka að fá fyrstu uppskeruna af eplunum okkar og svo einhverjar hnetur og vínber very nice.
 Jájá hvað get ég sagt? það er svo margt en jamm kvöldið í kvöld var mjög rólegt þar sem ég var "veik" svo við vorum að spila og hlusta á abba plötu og borða súkkulaði haha.
Er svo að fara í einhverja 2 tíma göngu með mömmu minni á morgun um skóginn héran víst rosa fallegt ég tek kanski nokkrar myndir fyrir ykkur.
 
Jebb jebb 
vá hvað þetta hljómar allt æðislega hjá þér :D .. og í sambandi við útskriftarferðina þá myndi ég bara skella mér til köru og í MA ferðina... ekki hægt að missa af þeirri ferð.. ;D

een hafðu það gott ljúfan :**
#1
10. október 2008 klukkan 22:29
Alexandra Arnardóttirjá nákvćm og sömó:*:*
#2
10. október 2008 klukkan 22:44
Æjih takk fyrir ammókveðjuna gamla, mér sveið samt smá í rassgatið að heyra jennsa enn ég leifi þér það þá bara í seinasta skiptið núna..!! gaman að heyra að þú sért að meika það með ísland.. okkur vantar svo að það verði talað vel um landið okkar núna, hér í Sviss kasta þeir nú ekkert fallegu orðunum á okkur sko!! Enn ég ELSKA Ísland.. og skemmtu þér á Sigurrósartónleikunum, vonandi verður gaman, þú færð örugglega að fara VIP ef u segist vera íslendingur :D svo ég segi bara núna sjáumst... stutt ha
#3
11. október 2008 klukkan 10:11
 
Andri Sigurjónsson
Gúgú, geggjað að allt er að gera sig þarna í landi súkkulaðis og bjórs. Gaman að lesa þetta langa blogg þrátt fyrir að ég sé búinn að heyra þetta allt áður, stoltur af þér. Jebb jebb ætlaði bara að kvita fyrir mig hef nú ekki verið mjög duglegur í því hehe. Hafðu það gott, heyrumst fjótlega. Sakna þín.
#4
11. október 2008 klukkan 16:03
ojjjj mig langar á SigurRós !! en ég er ad fara á AC/DC í janúar hahaha :D

trúnadarmadurinn tinn er snilld !! minn er midaldra kona, vúhúú !!

elska tig
#5
13. október 2008 klukkan 23:19
 
Auđur
já þú ert dugleg að blogga dúllan mín Þótti mjög vænt um að fá bréfið frá þér og er búin að taka fram prjónana .Skrifa þér bráðum.
Elska þig amma Auður.
#6
15. október 2008 klukkan 18:10
Krúttstelpan mín
Yndislegt hvað þér líður vel og hvað allt er að ganga frábærlega :) !!!
Mér finnst pabbi þinn úti vera mesta krúttið og langar bara að knúsa hann. Það er greinilegt að þú hefur eignast fjölskyldu sem verður þín alla þína ævi :) Æðislegt

Elskum þig mestast og söknum við Salka
#7
18. október 2008 klukkan 22:14
Kveðja frá mér :)
#8
30. október 2008 klukkan 14:18
Alexandra Bloggaðu, allavegna áður enn ég kem til Belgiu og bít í rassinn á þér.. ;)
Sakna þín sárt og það svíður
#9
30. október 2008 klukkan 18:43
 
Mamma
Hæ elskan

Er svo hrikalega stolt af þér elskan. Eigum við ekki að reyna að tala saman á skype á morgun???

Kveðja Mamma
#10
31. október 2008 klukkan 21:31

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Alexandra Arnardóttir
  • Netfang: alexa_arnard@hotmail.com
  • Stađur: Villers-la-Ville
  • Heimilisfang: Rue de la Houlette 7

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

endurfundir lexu og jexu