Þá er það ákveðið
18. nóvember 2008 klukkan 17:30
Ég fer til Sviss 27.des og verð hjá henni Jenný minni í 10 daga, er farin að telja niður! Veit ekki hvernig við eigum eftir að láta á lestastöðinni, ég tek semsagt lest frá Ottignes (borg sem ég fer í á hverjum degi til að skipta um lest) til Zurich klukkan 8:50 að morgni og verð komin til Zurich rúmlega 4 þannig að við erum að tala um meira en 7 tíma lestaferð!!
Þetta reyndist bara ódýrasti og einfaldasti kosturinn.=)
Ætla að punkta herna eitthvað fyrir ykkur:
Þetta reyndist bara ódýrasti og einfaldasti kosturinn.=)
Ætla að punkta herna eitthvað fyrir ykkur:
- Bang Gang: Fór með Ástu minni, æðislegir tónleikar, litlir og kósý stemmari. Eftir á hittum við 2 Íslendinga =) hittum fullt af aðdáendum Íslands haha mjög gaman, Svo kom Barði og bauð okkuar með sér og bandinu að koma með og fá okkur að borða og við að sjálfsögðu þáðum það boð=) haha fékk mér hvítvín með Barða, algjör meistari. ótrúlega skemmtilegt kvöld.
- Fór út að borða með bekknum mínum um daginn, ég og Jean og einhver vinur hans hittumst og fengum okkur bjór fyrir hittinginn, fínasta kvöld.
- Við fjölskyldan fórum út að borða og á snooker bar, vorum að fagna afmæli fannyar og 20 ár eru síðan þau hittu Celine og Emilie fyrst eða þú veist ættleiddu þau.
- SIGUR RÓS: VÁÁÁ!!!! það eru engin orð, bara geggjaðir tónleikar og mig langar bara mest til að koma heim til að fara á þá í laugardagshöllini, en ég læt það eiga sig ;) en rosa góðir tónleikar að sjálfsögðu og gaman að vera nánast sú eina í salnum sem skyldi og gat sungið með mohaha! Ásta endaði með að koma með okkur Veeru og hún nældi sér í miða fyrir utan rétt fyrir tónleikana.
- Fór ekki í skólann í gær vegna þess að við vorum of seinar í lestina svo við gistum hjá Ástu og ég átti svooo næs dag í gær, algjört chill fór bara í íbúð systra minna í lvln og sturtaði mig og svona og svo var Celine í tveggja tíma eyðu í skólanum og við fengum okkur að borða og horfðum á einhverja mynd og svo fór hún bara aftur í skólan og þá var ég bara alveg út af fyrir mig það sem eftir var af deginum og lá bara í sófanum að horfa á bíomyndir (reyndar döbbaðar á frönsku, en ég ég skyldi sammt alveg) Bara svo gott að fá að vera ein heima, sakna þess skoo mikið bara vera alveg út af fyrir sig =) hljómar ekkert rosa stuð en mér fannst þetta rosa indællt.
- Er að fara til Antwerpen að versla með Veeru og Ástu á laugardaginn, Elska flæmsku hlutan og flæmsku vá, í skólanu í dag var ég að lesa bók á flæmsku sem vinur minn var að lesa og ég veit ekki hvað ég er að gera hérna það væri svo miklu einfaldara að læra flæmsku haha, þetta er mjög líkt þýsku nema auðveldara, minna um málfræði reglur, en ég held nú samt að franskan eigi eftir að koma sér betur.En gæti alveg hugsað mér að læra flæmsku, skyl ekki afhverju svona margir hata þetta tungumál? Fer svo í keilu og út að borða með Gauthier má sunnudaginn.
- Fer í jólafrí 12. des. bara æði byrja í prófum eftir 2 vikur held ég, annars er mér nett sama þarf bara að taka 4 próf ætla að taka ensku, sem er bara ísí, þýsku,sem gæti reynst pínu trikkí en ég held að ég nái henni, mér hefur allavegana gengið vel hingað til, fékk 8/10 í einu rófinu en 5/10 í seinasta. Veit ekki alveg hver hin 2 verða er að hugsa um bara landafræði og listasögu
- Vá hvað bekkjasystkini mín svindla mikið í stæ prófum hef verið að fylgjast með þeim því undanfarið erum við alltaf í stæ prófum og ég skyll ekkert hvað við erum að gera svo ég hef ekki mikið annað að gera en stara út í loftið eða lesa eða skrifa eitthvað, og það er mjög finndið að sjá tæknina hjá þeim haha
- Jenný ætlar svo að koma til mín í febrúar og pabbi minn ætlar að tala við vin sinn sem er læknir og biðja hann um að skrifa vottorð upp á að ég sé veik svo ég geti varið öllum mínum stundum með Jennsu minni :*
Já ég hef það rosalega gott og er bara hrikalega spennt að hitta Jenný mína er að fara að kaupa miða á morgun kaupi mér kanski bara svona passa fyrir evrópu því ég á örugglega eftir að ferðast mikið þetta árið til Amsterdag og já Disney land og París aftur og fleira.
Og vá Aron hvað ég sakna þín líka :* var að hlusta á Mew og MGMT þegar ég var að skrifa þetta blogg og það er svo mikið ég og þú elska þig óendalega og hlakka til að búa með þér næsta vetur, í alvörunni ég var að tala við Jenný á skype um dagin og við vorum farnar að innrétta íbúðina okkar haha
Sakna ykkar allra
Og vá Aron hvað ég sakna þín líka :* var að hlusta á Mew og MGMT þegar ég var að skrifa þetta blogg og það er svo mikið ég og þú elska þig óendalega og hlakka til að búa með þér næsta vetur, í alvörunni ég var að tala við Jenný á skype um dagin og við vorum farnar að innrétta íbúðina okkar haha
Sakna ykkar allra
Aron Freyr
vúhú, fyrstur að kommenta :D ætla að vera duglegri að kommenta ;) sakna þín :*:*
#1
18. nóvember 2008 klukkan 21:13
hææ. til hamingju með nýtt blogg. gaman að fá loks fréttir. guð veit að ég er ekki nógu dugleg að tala við fólk á skype :/ haha. ég elska hvað þér líður vel þarna úti og fíla pabba þinn fyrir að redda þér læknisvottorði ;)
lvo jú :*
lvo jú :*
#2
20. nóvember 2008 klukkan 20:39
KristínEva
þú ert svo mikill snúður :* gaman að fylgjast með þér :D hafðu það gott í bili og við heyrumst vonand fljótlega aftur <3
#3
24. nóvember 2008 klukkan 14:27
elsku alexandra min eg er lika rosalega spennt fyrir ad hitta tig get ekki haett ad hugsa um tad òtal margt sem vid eigum eftir ad gera enn nuna er eg i milano aettla ad versla sma og svo fara ad fa mer ad borda eitthvad gott.. hlakka til ad sja tig,, bara sooon :D (K) koss og knus fra milan
#4
24. nóvember 2008 klukkan 16:04
