Aðalvalmynd

jólablogg

11. desember 2008 klukkan 15:15
jæjja þá ætti maður nú a vera komin í jólaskapið....en ég get ekki sagt að ég sé í einhverju jólaskapi, ég er í engu jólaskaði :/ mjög skrýtið, og jólin hérna sökka! ekki jól fyrir mér, engar jólaskreytingar, nema jú í búðunum, og á ýmsum hringtorgum í borgunum hérna er einhverjar skreytingar en það er ekki neitt um það að fólk sé að skreyta sín eigin hún eins og tíðkast á íslandi, það er voða lítið um það, ekki einusinni jólaseríur í gluggan, allavegana ekki enþá, og það er 11. :/ Fór reyndar til Louvain la novue áðan og það var geggjað jólalegt niðrí bæ þar og svoa gerfi snjór að falla á mann á einu torginu voða krúttó, en já veit ekki hvað ég myndi gera ef ég væri ekki að fara til Jennýar um jólin =) 
Er að klára að reyna að pakka þessum jólagjöfum inn fór einmitt lit louvain la novue í dag til að klára að kaupa allt en neibb gleymdi veskinu mínu! frábært ég ætlaði að senda þær í dag en ég get það ekki svo ég verð að gera það á morgun svo það stefnir allt í að þið fáið gjafirnar mínar ekki fyrir jól :/ SORRY ég skal reyna hvað ég get.
Fer í síðustu prófin mín á morgun og er svo komin í jólafrí =) fer í þýsku og Ensku munnlegt er svoltið stressuð fyrir þýskunni :/ hef líka svo lítin metnað núna haha =) var samt að tala við Jennsu í gær og ég er að pæla í að skella mér í fjarnám eftir áró, við jennsa erum að pæla í að taka náttúrufræði og heimsspeki til að létta okkur næsta vetur =) held að ég eigi eftir að sjá eftir því að gera það ekki þegar ég byrja í MA næsta vetur :)svo ég ætla að skella mér get bara lært í þessu þegar ég er í skólanum =) 
Fór í jólapakka leiðangur til Brussel á föstudaginn og fór á jólamarkaðinn, ekkert rosalegt sko, grand place-ið er reyndar rosa jóló =) annars var brjálað veður Cintamani úlpan mín blotnaði nánast í gegn haha!
Sant Nicola kom svi föstudagsnóttina svo foreldrar okkar gáfu okkur geðveikt mikið af nammi og súkkulaði=) það var líka risa matarboð hérna á föstudagskvöldið rosa gaman ég og systurmínar vorum bara inn í stofu að borða og drekka, elska systur mínar, vorum svo bara eitthvað að kúra í sófanum.
Talaði pínu við 3.F (bekkinn minn) um daginn það var ótrúlega finndið og gaman að sjá þau =) Talaði líka við afa Guðmund =) á skype haha.
Annars eru jólafrís plönin mín þessi: á morgun er kanski bekkjarpartý hef bara ekki hitt Jean neitt í viku út af prófunum og svo ætlum við Samuel og Leigh-Ann að hafa move-night hjá Samuel, ætla til Luxembour með Leigh-Ann og einhverjum rotary vinkonum hennar, fer til Brugges með fjölsk.(feneyjar norðursins)  djamma, fara í eitthvað amerískt jóla-partý með Leigh-Ann í Namur, halda upp á jólin 24. og 25. fara til Jennýar 26. des =) kem heim 4.jan skóla 5. jan =)
Er líka alveg að missa mig í Despó og Greys get ekki hætt og ég sem á að vera að læra fyrir þýsku haha held ég fái nú ekkert hátt á þessu prófi :/ já ég ætla líka að reyna að komast í klippingu og litun fyrir jól hef ekki farið síðan ég fór fyrir Fiskidaginn til Kolbrúnar :/ veit bara ekki hvað ég á að taka til bragðs kann ekki að vera með svona sítt hár.


 
Jenný SvansdóttirEkki voga þér Alexandra að klippa þig stutt, við sömdum um að hafa það sítt í vetur, annars færðu bara ekkert að gista hjá mér,.. getur bara sofið úti.. haha nei nie.. Enn vá hva við eigum eftir að rústa þessu fjarnámi, ég bara hlakka til að hafa eitthvað loksins að gera og svo horfir maður bara ánæsta vetur í MA sem eitthvað mjöööög næs.. við rústum þessu í sameiningu..
enn hlakka til að fá þig anginn minn, knúsa þig og svo tökum við bara mikið kúr á þetta saman..!!
Ættla að fara með jólkortið þitt í póst á morgun, mátt samt ekki opna það fyrr enn á aðfangadag, veit að þú ert góð í þessu jólapakka þjófstarti sko.. !! (K)
#1
11. desember 2008 klukkan 19:28
hæhæ...já lexa mín halltu hárinu sídu, mig langar ad sjá tad!!
en leidinlegt med jólastemmarann í belgíu! tú verdur bara ad redda tessu sjálf haha.

hafdu tad gott yfir hátídirnar elskan :*

lov jú
#2
13. desember 2008 klukkan 16:28
 
Hrund
Jihhh ég var einmitt að skoða myndir af þér og bara gosh það er orðið svo sítt á þér hárið Alexandra. Ekkert smá langt síðan maður hefur séð það svona sítt. Ég einmitt klippti mitt um daginn mega ass stutt og er að elska það. Kann heldur ekkert að vera með sítt:Þ Eigðu samt bara gleðileg jól og hafðu það sem allra best;*** sakna þín<3
#3
23. desember 2008 klukkan 12:16
Ég er að bíða eftir næsta Svivv blogginu þínu og myndum af ferðinni :D
#4
09. janúar 2009 klukkan 16:22

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Alexandra Arnardóttir
  • Netfang: alexa_arnard@hotmail.com
  • Staður: Villers-la-Ville
  • Heimilisfang: Rue de la Houlette 7

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

endurfundir lexu og jexu