fjórđi dagurinn í Belgíu og ţađ er ekki rigning
25. ágúst 2008 klukkan 16:12
Já það rignir mikið í Belgíu það er búið að rigna síðan ég kom veðrið er reyndar mjög skrítið hérna það er mígandi rigning svo hættir hún og það kemur sól í klukkutíma og svo aftur hellidemba, mjög finndið.
Flugið mitt gekk bara vel og svo var það komunámskeiðið það var í brussel í einhverjum skóla leit samt ekki út fyrir að vera skóli, og við sváfum á heimavistum sem voru frekar ógeðslegar, viðbjóðsleg lykt og rúmmin voru hálf rök en það er sem betur fer liðið hjá og ég er komin til fjölskyldunnar þau eru algjört æði þau náðu í mig í gær og sýndu mér húsið og svonna og geiturnar eru svo sætar, kisurnar kunna mjög vel við mig önnur þeirra liggur núna við stólinn minn og malar gul bröndótt.
Já ég er með svoltið mikla heimþrá en ég veit að það á eftir að koma betri tími. í dag fórum við til Nevilles að skoða skólann sem ég héllt ég væri að fara í en þá er hann bara með svo marga nema frá öðrum löndum en samt ekki frá AFS, og skólastjóranum finnst ekki sniðugt að vera með og marga svo það eru fleiri skólar þarna en þetta var skólinn sem Fanny litla systir mín fer í svo það hefði verið fínt að vera í honum. En eftir þetta fórum við í 2 aðra skóla en ég er samt ekki enþá komin í neinn frekar óþægjilegt þeir eru allir fullir reyndar var þessi seinasti ekki fullur voru bara ekki enþá komin með skólastjóra svo við verðum að bíða fram á fimmtudag og á fimmtudaginn er ég líka að fara að hitta alla skiptinemana á mínu svæði (BRABANT) og við förum að skoða Brussel=) Allavega virðist vera erfitt fyrir mig að komast í skóla :S en þetta reddast.
Ég læt líka nokkrar myndir núna sem þið getið skoðað.
mikið að söknuði :*
Alexandra
Fyrsta blogg
11. ágúst 2008 klukkan 16:50
Hér ætla ég að reyna að halda uppi bloggi á meðan á dvöl minni stendur svo þið getið fylgst með mér, ég mun byrja að blogga að alvöru þegar út er komið.
